Aðalfundur Stráka var haldinn 5. maí og fjölmenntu félagar á fundinn. Matarnefndin toppaði sig enn eina ferðina og grillmaturinn fékk hæstu einkunn frá viðstöddum.
Hefðbundin aðalfundarstörf fóru vel fram að loknu borðhaldi og voru ársreikningar samþykktir og kosið til stjórnar og ýmissa nefnda sveitarinnar.
Nýkjörin stjórn er þannig skipuð:
Magnús Magnússon formaður.
Örvar Tómasson varaformaður.
Gísli Ingimundarson gjaldkeri.
Ingvar Erlingsson ritari.
Hans Ragnar Ragnarsson meðstjórnandi.
Sóley Lilja Magnúsdóttir varamaður.
Sigurjón Ólafur Sigurðsson varamaður.
Stjórnin þakkar félögum fyrir góðan fund og fráfarandi stjórnarmönnum fyrir þeirra framlag til sveitarinnar.