
Strákar hafa fest kaup á framtíðarhúsnæði fyrir starfsemi sveitarinnar við Vesturtanga 2-6.
Fyrir átti sveitin hluta af húsnæðinu sem sveitin keypti árið 2020 af Gunnlaugi Oddsyni og nú seldi sonur hans Freyr Gunnlaugsson sveitinni sinn hluta í norðurenda hússins.
Húsnæði þetta mun rúma alla starfssemi sveitarinnar undir einu þaki sem hefur verið í þremur húsum undanfarið. Nálægð við Björgunarskipið Sigurvin sem hefur verið úthlutað varanlegu plássi í Innri Höfn með dyggilegri aðstoð Fjallabyggðar og góð aðkoma ásamt stóru útisvæði réð úrslitum í að ráðist var í þessi kaup.

Mikil vinna er nú framundan við að gera aðstöðuna fullbúna til framtíðarnota fyrir allar deildir sveitarinnar og verður það verkefni unnið eins og efni og aðstæður leyfa. Búið er að gera bráðabirgða aðstöðu í miðhluta hússins til þess að sveitin sé útkallsklár meðan breytingar standa yfir.
Ljóst er verkefnið verður kostnaðarsamt og bendum við þeim sem vilja styrkja sveitina með því að smella hér.
Við erum afar spennt fyrir því að hefja nýjan kafla í sögu Stráka í þessu húsi sem hentar afar vel fyrir starfsemina og gerir okkur kleift að sinna okkur störfum fyrir samfélagið með sóma.
Hér fylgja nokkrar myndir frá formlegri afhendingu þann 30. september 2026.
Við þökkum Frey Gunnlaugssyni og fjölskyldu fyrir velvild í garð Björgunarsveitarinnar Stráka og óskum þeim velfarnaðar.




