Það var nóg um að vera og nóg af verkefnum hjá Björgunarsveitinni í vonda veðrinu 11. febrúar sl. Björgunarsveitin festi meðal annars þakplötur og þakkant á Þormóðseyrinni.
Sama dag var 112 dagurinn haldinn hátíðlegur í Fjallabyggð og opið hús var í húsnæði Björgunarsveitarinnar Stráka sem sjá má með því að smella hér.
Styrktartónleikar Björgunarsveitarinnar voru síðan haldnir um kvöldið og er hægt að skoða myndir og vídeó frá tónleikunum hér.